26.3.2009 | 13:57
Hádegisspjall FFÍ föstudaginn 27. mars
Næsta spjall FFÍ verður á morgun, föstudaginn 27. mars kl. 12.00, á kaffihúsinu Babalú við Skólavörðustíg.
Umræðuefnið að þessu sinni eru þýðingar á erlendum hugtökum yfir á íslensku. Borið hefur á því að notaðar séu mismunandi þýðingar á sama hugtakinu bæði innan fornleifafræðinnar sem og innan annarra fræðigreina. Mikilvægt er að sátt komist á um þýðingar svo hefð fyrir notkun þeirra myndist. Svona þýðingaspjall hjá FFÍ var haldið í fyrsta sinn síðastliðið vor og var með eindæmum vel heppnað. Í framhaldi af því voru þýðingarnar birtar á heimasíðu félagsins í svonefndum Orðfærakassa. Nú er komið að því að endurtaka leikinn.
Þau hugtök sem fjallað verður um að þessu sinni eru m.a.:
Embodied
Temporality
Spatiality
Performativity
Chronology
Diachronic
Endilega hugsið málið og látið ykkur detta í hug góðar íslenskar þýðingar á þeim. Einnig ef það eru önnur hugtök sem ykkur finnst vanta þýðingu á, þá má gjarnan bera þau upp á spjallinu.
Við í stjórn FFÍ vonumst til að sjá sem flesta þannig að úr því verði áhugaverðar umræður.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 14:50 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.