Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009

Hádegisspjall FFÍ föstudaginn 27. febrúar

Kæru félagar

Næsta spjall FFÍ verður næstkomandi föstudag, þann 27. febrúar. kl. 12.00, á kaffihúsinu Babalú á Skólavörðustíg.

Umræðuefnið að þessu sinni er Endurfundir, nýopnuð sýning í Þjóðminjasafninu um niðurstöður fornleifarannsókna sem styrktar voru af Kristnihátíðarsjóði. Sýningin er stór áfangi í íslenskri fornleifafræði, sem og útgáfa bókar í tengslum við hana. Af því tilefni er vel þess virði að ræða saman um sýninguna og rýna í kosti hennar og galla. 

Við hvetjum því alla þá sem ekki hafa enn séð Endurfundi að bæta úr því, enda vel þess virði. Þess má geta að á miðvikudögum er ókeypis aðgangur að Þjóðminjasafninu.  


Kveðja,
stjórn FFÍ

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband