Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007

Fyrsta hádegisspjall FFÍ á vorönn á kaffi Babalú, föstudaginn 2. febrúar, kl. 11:30.

Fyrsta hádegisspjall FFÍ á vorönn verður haldið á kaffihúsinu Babalú næstkomandi föstudag, 2. febrúar, kl. 11:30. Þessir viðburðir þóttu takast vel á haustönn og standa vonir til að jafn góðar umræður muni fara fram nú á vorönninni.
Efni næsta hádegisspjalls verða drög stjórnvalda að stefnu í fornleifavernd á Íslandi og þá sérstaklega framtíðarhugmyndir um friðlýsingu fornminja og umgengni um þær, m.a. með rannsóknir í huga. Allir félagsmenn ættu nú þegar að hafa fengið drögin í hendurnar þannig að þeir sem vilja kynna sér þau betur fyrir föstudaginn geta gert það.

Viðburðir Fornleifafræðingafélags Íslands á árinu 2007

Stjórn FFÍ hefur nú birt dagskrá ársins 2007 hér á heimasíðunni.   Dagskráin er þó alls ekki tæmandi og líklegt er að ýmsir viðburðir eigi eftir að bætast við. Athygli er vakin á því að árshátíð félagsins sem áætlað var að halda í febrúar verður haldin í september. Þetta var niðurstaða stjórnar sem sá fram á of þétta dagskrá á vorönn.

Húsfyllir á fyrirlestri dr. Anders Andrén í Þjóðminjasafni Íslands

Húsfyllir var á fyrirlestri sænska fornleifafræðingsins dr. Anders Andrén sem hann hélt á vegum FFÍ í sal Þjóðminjasafns Íslands í gær, sunnudaginn 28. apríl.
Í fyrirlestrinum, sem nefndist Mission Impossible? The Archaeology of Old Norse Religion fjallaði dr. Andrén um rannsóknarverkefni sitt "Vägar til Midgård" þar sem norræn goðafræði er í brennidepli og leitast er við að svara spurningum um heimildagildi ritaðra heimilda sem fyrst og fremst hafa verið settar fram af kristnum mönnum og möguleika fornleifafræðinnar til að varpa nýju ljósi á þetta fræðasvið.
Fyrirlestri dr. Andrén var mjög vel tekið og í lok hans fóru áhugaverðar umræður fram. 
Að fyrirlestrinum loknum tilkynnti stjórn FFÍ að dr. Andrén hefði þegið heiðusfélaganafnbót í FFÍ og var honum veitt bókagjöf frá félaginu í því tilefni. Þess má geta að fyrirlestur dr. Andrén mun birtast í næsta hefti "Ólafiu" sem áætlað er að komi út á vormánuðum.


FFÍ býður sænska fornleifafræðingnum dr. Andres Andrén til landsins 28. janúar

Sunnudaginn 28. janúar nk., kl. 15.00, flytur dr. Anders Andrén, prófessor í fornleifafræði við Háskólann í Stokkhólmi, fyrirlestur á vegum FFÍ í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands.

Fyrirlestur hans nefnist: "Mission impossible? The Archaeology of Old Norse religion"

Abstract: Old Norse religion is supposed to be one of the best known pre- Christian religions in Europe, due to the rich and varied Icelandic literature. However, all Icelandic Eddas and Sagas are medieval Christian literature, showing how the authors interpreted the pre-Christian history of Iceland and Scandinavia. Do they merely present a "fantasy religion" or do the Icelandic narratives contain elements based on social practice in a non-Christian past? As archaeologists we may ignore the problematic Icelandic texts totally, but in that case we will loose many fundamental interpretative references. On the other hand, it is difficult to use the Icelandic sources in archaeological studies of Scandinavian prehistory. In this paper I will present how these problems have been handled in the Midgård project in Sweden.


Fundur um drög að stefnu stjórnvalda í fornleifavernd 18. janúar kl. 17

Sameiginlegur fundur Fornleifafræðingafélags Íslands og Félags íslenskra fornleifafræðinga til að ræða nýútkomin drög að stefnu stjórnvalda í fornleifavernd árin 2006 - 2011 verður haldinn fimmtudaginn 18. janúar í sal 101 í Odda og hefst kl. 17:00.
Stjórn FFÍ hvetur alla félagsmenn til að mæta á þennan fund.

FFÍ býður sænska fornleifafræðingnum dr. Anders Andrén til landsins

Sunnudaginn 28. janúar nk., kl. 15.00, flytur dr. Anders Andrén, prófessor í fornleifafræði við Háskólann í Stokkhólmi, fyrirlestur á vegum FFÍ í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands.

Fyrirlestur hans nefnist: "Mission impossible? The Archaeology of Old Norse religion"

Abstract: Old Norse religion is supposed to be one of the best known pre- Christian religions in Europe, due to the rich and varied Icelandic literature. However, all Icelandic Eddas and Sagas are medieval Christian literature, showing how the authors interpreted the pre-Christian history of Iceland and Scandinavia. Do they merely present a "fantasy religion" or do the Icelandic narratives contain elements based on social practice in a non-Christian past? As archaeologists we may ignore the problematic Icelandic texts totally, but in that case we will loose many fundamental interpretative references. On the other hand, it is difficult to use the Icelandic sources in archaeological studies of Scandinavian prehistory. In this paper I will present how these problems have been handled in the Midgård project in Sweden.


Félagsfundur 16. janúar

Félagsfundur í Fornleifafræðingafélagi Íslands verður haldin kl. 20.00 næstkomandi þriðjudag, 16. janúar á Fornleifafræðistofunni, Ægisgötu 10. Efni fundarins eru nýútkomin drög að stefnumótun í fornleifavernd. Drögin og greinargerð þeim tilheyrandi er hægt að fá senda frá ritara félagsins, Kristjáni Mímissyni. Stjórn FFÍ skorar á alla félagsmenn að mæta á fundinn enda er þetta mikilvægt mál sem kemur okkur öllum við!

Kveðja,
Stjórn FFÍ


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband