“Stóriðja á Ströndum” annar fyrirlesturinn í fyrirlestrarröð FFÍ og FÍF

Annar fyrirlesturinn í fyrirlestrarröð Fornleifafræðingafélags Íslands og Félags íslenskra fornleifafræðinga um nýjar rannsóknir á yngri fornleifum og nútímafornleifafræði. Fyrirlesturinn verður haldinn fimmtudaginn 10. mars 2011, kl. 20:00 í kjallara húsnæðis Fornleifaverndar ríkisins, Suðurgötu 39, 101 Reykjavík.

Að þessu sinni mun Þóra Pétursdóttir, doktorsnemi í fornleifafræði við Háskólann í Tromsø, flytja fyrirlesturinn  “Stóriðja á Ströndum”:

“Í erindinu verður sagt frá yfirstandandi doktorsrannsókn á verksmiðjuminjum í Ingólfsfirði og Djúpavík í Árneshreppi á Ströndum. Á 4. og 5. áratug síðustu aldar risu þar síldarbræðslur, stóriðjur þess tíma, sem möluðu eigendum sínum gull um skamman tíma. Við verksmiðjurnar byggðust upp lítil samfélög, sem þöndust út og drógust saman með dyntum síldarinnar og hurfu loks alveg með hvarfi hennar á 6. og 7 áratugnum. Minjar þessara stóriðjutíma standa þó enn og stinga nokkuð í stúf við umhverfi sitt og almennt yfirbragð þessa afskekkta byggðarlags.  Rannsóknin er hluti stærra verkefnis sem hefur að markmiði að skoða nútímaminjar í víðum skilningi, upplýsinga- og menningarlegt gildi þeirra, og afdrif í fræðilegri sem og almennri orðræðu. Ásamt því auka við minningu síldarævintýrisins, og þess óyrta í þeirri sögu, munu verksmiðjuminjarnar því einnig kynda undir kennilegar vangaveltur um nývæðingu, niðurrif, efnismenningu og gildi hennar. Verkefnið er skammt á veg komið og mun erindið aðallega snúa að þeim hugmyndum sem fyrir liggja og kynningu á stöðunum tveimur sem rannsóknin beinist að.”


Eftir fyrirlesturinn verður opið fyrir spurningar og frekari umræðu efnið.

Fyrirlesturinn er öllum er opinn og við vonum að sem flestir sjái sért fært að mæta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband