2.1.2008 | 09:55
Aðalfundur FFÍ, 3. janúar, kl. 17:00
Aðalfundur FFÍ verður haldinn þann 3. janúar, kl. 17:00 í kaffistofu Þjóðminjasafns Íslands - Setbergi.
Dagskrá aðalfundar:
1) Skýrsla liðins árs
2) lagðir fram endurskoðaðir reikningar
3) lagabreytingar
4) kosning stjórnar
5) kosnir tveir endurskoðendur
6) önnur mál
Stjórn FFÍ hvetur alla félagsmenn til að mæta á fundinn enda er mikið að gerast nú um stundir í málefnum fornleifafræðinnar og mörg mál sem félagið þarf að taka afstöðu til.
Að loknum fundinum munu félagsmenn hittast á veitingastaðnum Tívolí við Laugaveg 3 og snæða saman kvöldverð í tilefni af nýju ári.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.