3.2.2011 | 11:10
Styrkir úr fornleifasjóði
Fornleifasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum skv. 24. gr. þjóðminjalaga nr. 107/2001. Úthlutunarreglur sjóðsins nr. 73/2004 eru birtar í Stjórnartíðindum og á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis. Veittir verða styrkir til verkefna sem stuðla að varðveislu og rannsóknum á fornleifum og forngripum. Á fjárlögum 2011 eru 17,2 milljónir til ráðstöfunar. Umsóknarfrestur er til 1.mars 2011.
Umsóknir, í fjórum eintökum, sendist:
Stjórn fornleifasjóðs, mennta og menningarmálaráðuneyti
Sölvhólsgötu 4
150 Reykjavík
Stjórn fornleifasjóðs 1. febrúar 2011
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 11:12 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.