Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2010

Vakin athygli á fyrirlestri:

Hverjir voru skrælingjar?

Samskipti norrænna manna og og frumbyggja í Vesturheimi

Fyrirlestur á Landnámssýningunni 30. ágúst

Dr. William Fitzhugh heldur fyrirlestur á Landnámssýningunni í Aðalstræti 16, mánudaginn 30. ágúst  kl. 17:00 Dr Fitzhugh er forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar um heimskautafræði við Smithsonian stofnunina í Wasington D.C  Hann fæst fyrst og fremst við rannsóknir á frumbyggjum heimskautasvæðisins í austurhluta Kanada og hefur ritað fjölda bóka og greina um fræðasvið sitt.

 Í Vínlands sögu eru frumbyggjar Norður-Ameríku, sem norrænir landkönnuðir hittu fyrir þúsund árum,  nefndir skrælingjar. Í fyrirlestrinum verður fjallað  um menningu ýmissa hópa sem bjuggu  á því svæði sem norrænir menn fóru um.   Gerð  verður grein fyrir fornleifum sem benda til samskipta aðkomumanna og heimamanna og hvers eðlis þau kunna að hafa verið. Fyrirlesturinn er í boði Víkingaheima, Minjasafns Reykjavíkur og bandaríska sendiráðsins í Reykjavík. Allir velkomnir.

Norskur peningur frá 11. öld fundinn á Nýja Englandi.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband