Bloggfærslur mánaðarins, desember 2010

Aðalfundur FFÍ 2010

Aðalfundur Fornleifafræðingafélags Íslands verður haldinn fimmtudaginn 6. janúar 2011, kl. 17:00 í fundarherbergi doktorsnema í Gimli, Háskólatorgi.

Dagskrá aðalfundar verður sem hér segir:

1)    skýrsla liðins árs

2)    lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins

3)    lagabreytingar. Tillögu að lagabreytingu má nálgast hér að neðan.

4)    inntaka nýrra félagsmanna

5)    kosning stjórnarmanna

6)    önnur mál

 
Stjórn FFÍ

 

 

Tillaga að lagabreytingum Fornleifafræðingafélags Íslands

Lögð fyrir aðalfund 2010



Lagt er til að bætt verði við nýrri grein um ritröð félagsins, Ólafíu.

Tillagan er svohljóðandi:

Fornleifafræðingafélag Íslands gefur út ritið Ólafía. Stefnt skal að útgáfu þess einu sinni ári. Hvert eintak er tileinkað ákveðnu þema og birtir efni því tengdu í formi fræðigreina eða ritgerða. Ritstjóri, einn eða fleiri, hvers heftis er kosinn á aðalfundi hvert ár og ritnefnd ef við á. Ritið skal vera ritrýnt þegar þema þess miðast við birtingu stakra greina, sem ekki hafa verið gefnar út áður. Stefnan með útgáfu Ólafíu er að gefa fólki kost á að lesa öflugt og vandað fræðirit um fornleifafræði. Efni þess skal að öllu jöfnu vera ritað á íslensku til þess að skapa hefð fyrir notkun hugtaka í fornleifafræði á íslensku. Heimilt er að birta greinar í því á ensku. Ólafía er gefin út fyrir sjálfsaflafé í formi styrkja, sölutekna og annarra framlaga.

 


Greiðsla félagsgjalda

Ágætu félagsmenn

 
Nú líður að lokum árs og því komið að innheimtu á félagsgjöldum fyrir þetta árið. Sem fyrr eru þau 2.000 kr. fyrir aðalfélaga og 1.000 kr. fyrir aukafélaga og skulu leggjast inn á reikning 0101-05-268166, kt. 510399-3159, með skýringunni gjöld.10.

 
Aðalfundur FFÍ verður haldin fimmtudaginn 6. janúar 2011, kl. 17:00 í fundarherbergi doktorsnema í Gimli, Háskólatorgi. Minnt er á að félagsgjöld fyrir árið 2010 verða hafa verið greidd fyrir aðalfund til þess að hafa kosingarétt á honum.

 
Með kveðju,
 
Stjórnin

Nýr vefur um heimsminjar

Í gær var opnaður nýr vefur um heimsminjar á íslensku heimsminjar.is. Þar má nálgast allskyns fróðleik um þær umsóknir sem Ísland er aðili að og umsóknarferlið.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband